Bloggfærslur mánaðarins, mars 2010
31.3.2010 | 10:30
PÁSKAFRÍ
Sælir piltar
Í gær var síðasta æfing fyrir páska og nú er við bara komnir í páskafrí!!!
Æfingar hefjast aftur þriðjudaginn 6. apríl.
GLEÐILEGA PÁSKA
Maggi og Dagbjört
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.3.2010 | 23:53
HÖTTUR Goðmótsmeistari B liða!!!
6. flokkur varð í dag Goðmótsmeistari B liða eftir dramatískan sigur á heimamönnum í Þór 4-3, en þessi lið mættust einnig í riðlakeppni mótsins og þá sigruðu okkar menn einnig 3-2. Þetta voru því bestu liðin sem mættust og betra liðið vann... þó mjótt hafi verði á munum.
Lið Hattar spilaði frábærlega á mótinu og vann alla sex leikina sem það spilaði. Í riðlakeppninni vann liðið Þór, Leikni (Reykjavík), Fjölni og Fylki og í undanúrslitum lið Vals (sem þeir sjálfir kalla stolt Reykjavíkur). Í úrslitaleiknum var svo lið Þórs lagt aftur, eins og áður sagði.
Strákarnir stóðu sig ekki síður vel utan vallar og voru sér í sínum til sóma.
Myndar af mótinu er komnar á myndasíðuna og vonandi bætast fleiri við síðar.
Nánari upplýsingar um mótið má finna á...
www.godamot.blog.is/blog/godamot
Áfram Höttur...
MJ
Bloggar | Breytt 29.3.2010 kl. 16:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.3.2010 | 12:34
ÆFING FELLUR NIÐUR Í DAG (22.3.2010)
Æfing 6. flokks fellur niður í dag sökum snjóþyngsla í Fellahreppi!!!
Samkvæmt veðurlýsingu frá Gorazd þá er ökladjúpur snjór og vindur í Fellum.
Kveðja,MJ
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.3.2010 | 18:18
Æfingabúðir sunnudaginn 7. mars.
Í dag voru haldnar æfingabúðir fyrir stelpur og stráka í 6 flokk. Eysteinn Hauksson fyrrum Hattari og núverandi yfirþjálfari yngri flokka Grindarvíkur í knattspyrnu kom og kenndi börnunum nokkur trix. Einnig ræddi Eysteinn við krakkana um hollustu og heilbrigði í smá fyrirlestri og sýndi þeim myndband frá æfingu yngri flokka Grindarvíkur. Í hádeginu snæddu börnin ljúffengan hádegisverð í boði Málningarþjónustu Jóns og Þórarins.
Fjölmargir foreldrar lögðu okkur lið í þessu verkefni og viljum við sérstaklega þakka Árný, Lindu, Svölu og Tinnu fyrir matarstússið og Magga Jónasar, Tóta, Gulla Guðjóns og Gumma fyrir aðstoðina á vellinum. Ekki má gleyma þjálfurunum okkar, Mola og Maríu Lenu fyrir vel unnin störf.
Gaman væri að fá viðbrögð frá ykkur eftir daginn ;-)
Með kveðju
Dagbjört og Maggi
ps. myndir frá deginum eru komnar í albúm !!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.3.2010 | 12:24
Æfing í dag fellur niður (fimmtudaginn 4. mars)
Sæl nú
Skólahreysti verður haldin í íþróttahúsinu í dag, fimmtudag 4. mars.
Æfing 6. flokks fellur því niður!!!
Það verður hins vegar æft stíft í næstu viku!!!
Kveðja,
Maggi og Dagbjört
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eldri færslur
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- September 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010