Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2010
28.1.2010 | 23:22
Áfram ÍSLAND!!!
Sæl nú
Uppákoman heppnaðist vel "strákarnir okkar" voru til fyrirmyndar og "strákarnir okkar" unnu frændur okkar frá Noregi í skemmtilegum leik.
Yfir tuttugu strákar skemmtu sér vel með nokkrum foreldrum og allir fóru glaðir heim, eins og myndirnar sýna. Við þökkum Mola kærlega fyrir að lána okkur Nýung undir þennan viðburð.
Aðeins af þjálfaramálum. Gorazd er væntanlegur í byrjun næstu viku og kemur hann þá inn í yngri flokka starfið hjá Hetti ásamt því að þjálfar meistaraflokk kvenna.
Við bjóðum Gorazd að sjálfsögðu hjartalega velkominn.
Kveðja,
Maggi og Dagbjört
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.1.2010 | 17:13
Nýjar myndir
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.1.2010 | 16:58
Uppákoma !
Halló,
Á fimmtudaginn ætlum við að hvíla okkur á fótboltasparki og verður því ekki hefðbundinn æfing hjá 6 flokk.
Í staðinn ætlum við að hittast í félagsmiðstöðinni Nýjung klukkan 14:50 og horfa saman á leik Íslands og Noregs í Evrópukeppninni í handbolta. Drengjunum er frjálst að hafa með sér snakk eða popp og drykk að eigin vali. Við reiknum með að leikurinn verði búinn klukkan 16:30. Foreldrum er velkomið að vera með ;-)
Vonumst til að sjá sem flesta
með kveðju
Dagbjört og Maggi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.1.2010 | 00:21
Fótboltafréttir 20. janúar
Sæl öll !
Í næstu viku þe. vikuna 24 - 30 janúar er stefnan að hafa uppákomu fyrir drengina okkar í 6 flokk og foreldra. Stefnan er að horfa saman á handboltaleik á Evrópumótinu, nú þurfum við öll að krossleggja putta og vona að Íslendingar komist áfram í milliriðla til þess að við getum notað það tækifæri og hist eina kvöldstund. Nánari upplýsinga er að vænta um helgina og viljum við því biðja ykkur að kíkja á póstinn á sunnudagskvöld...
Æfingin á morgun verður á Fellavelli þar sem undirbúningur fyrir þorrablót er í fullum gangi og íþróttahúsið því lokað.
10 strákar í flokknum hafa undanfarna daga spilað tvo æfingaleiki við stelpurnar í fimmta flokk, drengirnir stóðu sig með mikilli prýði og getum við verið stollt af leik þeirra. Stefnt er á að þeir sem spiluðu ekki núna fái líka æfingaleiki fljótlega.
Eins og staðan er núna eru einungis 3 búnir að melda sig á Goðamót. Við ætlum rétt að vona að fleir sláist í hópinn og viljum við biðja fólk að skrá drengina sem allra fyrst hjá tenglum.
Að lokum viljum við biðja ykkur foreldra að koma með okkur í sameiginlegt átak til að sporna við óróleika í búningsklefanum í íþróttahúsinu. Töluvert mikið er um hávaða og læti í klefanum fyrir æfingar. Leggjumst á eitt, börn, foreldrar og þjálfarar og minnkum hamaganginn í klefanum.
með kveðju
Dagbjört og Maggi
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.1.2010 | 15:42
Æfingaleikur á Fellavelli laugardaginn 16. janúar
6. flokkur hefur verið beðinn að spila æfingaleik á Fellavelli á morgun (laugardaginn 16/1) kl. 14.00 við stelpurnar í 4.-5. flokki.
Eftirtaldir strákar eiga að mæta stundvíslega kl. 13.45.
1. Huginn
2. Ísar Karl
3. Jakob Jóel
4. Kristinn Már
5. Ólafur Sveinmar
6. Hafþór Logi
7. Brynjar Þorri
8. Elvar Veigur
9. Hreimur Hreinn
Við viljum biðja foreldra þessara drengja að senda tenglum tölvupóst eða hringja (símanúmer og netföng hér til hliðar) til þess að láta vita hvort þeir komist eða ekki.
Vonumst við til að fá fleiri æfingaleiki í vetur og allir fái að spila með á einhverjum tímapunkti.
Góða helgi gott fólk !!!
Dagbjört og Maggi
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.1.2010 | 22:42
Fréttaskot 14.01.2010
Þá er komið að fréttaskoti frá okkur í 6 flokk.
Fyrst ber að nefna að fótboltaæfingin sem á að vera í íþróttahúsinu á
Egilsstöðum fimmtudaginn 22. janúar þarf að flytjast á Fellavöll
vegna þorrablóts.
Æfingar hjá okkur verða á sama tíma og fyrir áramót, á mánudögum á
Fellavelli klukkan 15:15 til 16:15, á þriðjudögum í íþróttahúsinu á
Egilsstöðum klukkan 19:00 til 20:00 og á fimmtudögum í íþróttahúsinu
á Egilsstöðum klukkan 16:00 til 17:00. Þjálfarar flokksins þessa
önnina verða Moli, Bjarni og Brynjar Árna. Með hækkandi sól kemur
Goradz væntanlega að þjálfa hjá okkur og gætu þá hlutirnir breyst.
Við látum ykkur vita af því þegar það skýrist.
Goðamótið á Akureyri er fyrir 6 flokk helgina 26-28 mars. Nú er svo
komið að við þurfum að fara að staðfesta skráningar á mótið og því
væri gott að fá að vita hvort þið ætlið með eða ekki.
Við stefnum á að hafa samkundu fyrir drengina ásamt foreldrum í
vikunni 25-29 janúar. Ekki erum við búin að negla nákvæma dagsetningu
en þið getið haft þetta bak við eyrað og farið að láta ykkur hlakka
til ;-)
Við erum að vinna í því í samráði við þjálfara að fá æfingaleiki við
Fjarðabyggð vonandi í febrúar. Nánari upplýsingar um það síðar.
Kveðja
Dagbjört og Maggi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.1.2010 | 15:32
Bloggsíða 6. flokks Hattar
Sælt veri fólkið
Við erum að spá í hvort þetta gæti verið góð leið til að koma fréttum og tilkynningum á fólk vegna starfsins í flokknum???
Það má líka setja hér inn myndir, úrslit í mótum og fleira skemmtilegt.
Kveðja,
Maggi og Dagbjört
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Eldri færslur
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- September 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010