Færsluflokkur: Bloggar
7.4.2010 | 17:05
FORELDRAFUNDUR!!!
Við ætlum að vera með foreldrafund í Hettunni mánudagskvöldið 12 apríl klukkan 20:00.
Dagskrá fundarins :
1) Mótamál í vor og sumar
2) Gangurinn í starfinu
3) Fjáraflanir og peningamál
4) Vorgleði
5) Önnur mál
Mikilvægt að foreldrar mæti.
Með kveðju
Dagbjört og Maggi
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.3.2010 | 10:30
PÁSKAFRÍ
Sælir piltar
Í gær var síðasta æfing fyrir páska og nú er við bara komnir í páskafrí!!!
Æfingar hefjast aftur þriðjudaginn 6. apríl.
GLEÐILEGA PÁSKA
Maggi og Dagbjört
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.3.2010 | 23:53
HÖTTUR Goðmótsmeistari B liða!!!
6. flokkur varð í dag Goðmótsmeistari B liða eftir dramatískan sigur á heimamönnum í Þór 4-3, en þessi lið mættust einnig í riðlakeppni mótsins og þá sigruðu okkar menn einnig 3-2. Þetta voru því bestu liðin sem mættust og betra liðið vann... þó mjótt hafi verði á munum.
Lið Hattar spilaði frábærlega á mótinu og vann alla sex leikina sem það spilaði. Í riðlakeppninni vann liðið Þór, Leikni (Reykjavík), Fjölni og Fylki og í undanúrslitum lið Vals (sem þeir sjálfir kalla stolt Reykjavíkur). Í úrslitaleiknum var svo lið Þórs lagt aftur, eins og áður sagði.
Strákarnir stóðu sig ekki síður vel utan vallar og voru sér í sínum til sóma.
Myndar af mótinu er komnar á myndasíðuna og vonandi bætast fleiri við síðar.
Nánari upplýsingar um mótið má finna á...
www.godamot.blog.is/blog/godamot
Áfram Höttur...
MJ
Bloggar | Breytt 29.3.2010 kl. 16:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.3.2010 | 12:34
ÆFING FELLUR NIÐUR Í DAG (22.3.2010)
Æfing 6. flokks fellur niður í dag sökum snjóþyngsla í Fellahreppi!!!
Samkvæmt veðurlýsingu frá Gorazd þá er ökladjúpur snjór og vindur í Fellum.
Kveðja,MJ
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.3.2010 | 18:18
Æfingabúðir sunnudaginn 7. mars.
Í dag voru haldnar æfingabúðir fyrir stelpur og stráka í 6 flokk. Eysteinn Hauksson fyrrum Hattari og núverandi yfirþjálfari yngri flokka Grindarvíkur í knattspyrnu kom og kenndi börnunum nokkur trix. Einnig ræddi Eysteinn við krakkana um hollustu og heilbrigði í smá fyrirlestri og sýndi þeim myndband frá æfingu yngri flokka Grindarvíkur. Í hádeginu snæddu börnin ljúffengan hádegisverð í boði Málningarþjónustu Jóns og Þórarins.
Fjölmargir foreldrar lögðu okkur lið í þessu verkefni og viljum við sérstaklega þakka Árný, Lindu, Svölu og Tinnu fyrir matarstússið og Magga Jónasar, Tóta, Gulla Guðjóns og Gumma fyrir aðstoðina á vellinum. Ekki má gleyma þjálfurunum okkar, Mola og Maríu Lenu fyrir vel unnin störf.
Gaman væri að fá viðbrögð frá ykkur eftir daginn ;-)
Með kveðju
Dagbjört og Maggi
ps. myndir frá deginum eru komnar í albúm !!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.3.2010 | 12:24
Æfing í dag fellur niður (fimmtudaginn 4. mars)
Sæl nú
Skólahreysti verður haldin í íþróttahúsinu í dag, fimmtudag 4. mars.
Æfing 6. flokks fellur því niður!!!
Það verður hins vegar æft stíft í næstu viku!!!
Kveðja,
Maggi og Dagbjört
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.2.2010 | 10:14
Agareglur og mót goðanna
Það er tvennt:
1. Agareglur:
Tenglaráð hefur ásamt þjálfurum samþykkt meðfylgjandi agareglur fyrir yngri flokka Hattar í knattspyrnu ásamt vinsamlegum tilmælum til foreldra varðandi samskipti við þjálfara. Viljum við biðja ykkur foreldra að skoða þetta vel og fara yfir með krökkunum. Hugmyndin með þessu er að hafa fáar og einfaldar reglur og skýr viðurlög sem ekki þarf að hártoga eða deila mikið um. Jafnframt koma þarna fram á hvaða samskipti við foreldra þessi viðurlög kalla. Þar er gert ráð fyrir að þjálfarar hafi frumkvæði að þeim samskiptum sem þeir telja nauðsynleg og viljum við biðja foreldra að virða það. Það liggur fyrir að samningar okkar við þjálfara gera ekki ráð fyrir því að þeir verji miklum tíma í símtöl eða fundi með foreldrum og því er mikilvægt að því sé stillt í hóf. Hafi foreldrar hins vegar einhverjar athugasemdir varðandi starfið eða annað biðjum við fólk að ræða það við tengla.
2) Goðamót 2010 lokaútkall:
Við þurfum að tilkynna inn endanlega fjölda liða í vikunni og því er lokafrestur til að skrá sig annað kvöld (24. febrúar).
Þeir sem eru skráðir eru:
1) Kristinn Már
2) Jakob Jóel
3) Ólafur Sveinmar
4) Ísar Karl
5) Brynjar Þorri
6) Gabríel Daði
7) Steingrímur Örn
8) Huginn
Ég vil biðja ykkur að staðfesta skráningar ykkar og jafnframt að biðja þá sem ekki eru að listanum en ætla að láta strax vita. Miðað við þetta þá förum við með eitt lið norður.
Kveðja,
Maggi og Dagbjört
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.2.2010 | 12:36
FRÉTTA - SKOTIÐ
Sæl nú
Gangurinn í starfinu
6. flokkur æfði í gær á Fellavelli og sól og blíðu enda veðursæld með eindæmum í Fellahreppi.
Moli, Gorazd og Bjarni stjórnuðu æfingunni sem gekk vel.
Æfingagjöld vorönn
Á síðasta fundi tenglaráðs var ákveðið að æfingagjald fyrir vorönn yrði 15.000 kr. og systkina afsláttur með sambærilegum hætti og undanfarin ár. Vorönnin stendur frá byrjun janúar fram undir miðja júní (miðast við skólaslit).
Greiðsluseðlar verða sendur út fljótlega.
Aga-reglur-yngri flokka
Þá var ákveðið á tenglafundinum að setja niður einfaldar agareglur sem kynntar iðkendum og foreldrum fljótlega.
Um verður að ræða reglur sem:
1) Miða að því bæta hegðun iðkenda í tengslum við æfingar og keppni á vegum félagsins.
2) Miða að því að bæta kurteisi og virðingu iðkenda gangvart þjálfurum, liðsfélögum og öðrum sem koma að starfinu.
Jafnframt verður kveðið á um mælt fyrir um hvaða viðurlögum verðu beitt, fari menn ekki eftir þessu reglum.
Meira um það fljótlega.
Goðamót 2010
Foreldrar þurfa að láta okkur vita sem allra fyrst hvort menn ætla norður eða ekki, þannig að við getum gengið frá skráningu. Það þarf að gerast sem allra fyrst.
Gott í bili en endilega skiljið eftir athugasemdir eða kvittið í gestabókina svo við sjáum hverjir eru hér á ferðinni!!!!!
Maggi og Dagbjört
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.1.2010 | 23:22
Áfram ÍSLAND!!!
Sæl nú
Uppákoman heppnaðist vel "strákarnir okkar" voru til fyrirmyndar og "strákarnir okkar" unnu frændur okkar frá Noregi í skemmtilegum leik.
Yfir tuttugu strákar skemmtu sér vel með nokkrum foreldrum og allir fóru glaðir heim, eins og myndirnar sýna. Við þökkum Mola kærlega fyrir að lána okkur Nýung undir þennan viðburð.
Aðeins af þjálfaramálum. Gorazd er væntanlegur í byrjun næstu viku og kemur hann þá inn í yngri flokka starfið hjá Hetti ásamt því að þjálfar meistaraflokk kvenna.
Við bjóðum Gorazd að sjálfsögðu hjartalega velkominn.
Kveðja,
Maggi og Dagbjört
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.1.2010 | 17:13
Nýjar myndir
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eldri færslur
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- September 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010