Færsluflokkur: Bloggar
9.9.2010 | 10:40
Vetrarstarf 6. flokks
Sæl öll
Á mánudaginn hefst vetrarstarfið hjá Yngri flokkum Hattar í fótbolta og þá ganga drengir fæddir 2000 upp í 5. flokk og drengir fæddir 2002 koma til okkar í 6. flokki.
Það verða ekki bara breytingar á iðkendum hjá 6. flokki, heldur líka á þjálfara og æfingum.
Í fyrsta lagi fáum við nýjan þjálfara sem er Tóti Borgþórs (Þórarinn Máni) en hann er uppalin Hattari sem alið hefur manninn í borginni undanfarin ár og unnið við þjálfun. Síðast var hann að þjálfa hjá hinu fornfræga félagi Fram. Tóti mun hafa með sér aðstoðarmenn eftir þörfum og verða þeir kynntir til leiks í næstu viku.
Í öðru lagi æfum við nú 2x í viku á Fellavelli og 1x í Íþróttahúsinu á Egilsstöðum en það kemur ekki til af góðu því við misstum einn tíma á milli ára og því er þetta niðurstaðan. Ég er hins vegar á því að það sé miklu betra fyrir drengina að æfa úti og ef menn klæða sig vel þá verður þetta ekki vandamál. Ef miðað er við fyrra ár þá kom ekki oft fyrir að við þyrftum að fella niður æfingar út vegna veðurs.
Æfinga flokksins verða því:
Mánudagar kl. 16.15-17.15 (Fellavöllur).
Þriðjudagar kl. 16.15-17.15 (Fellavöllur).
Fimmtudagar kl. 16.00-17.00 (Íþróttahús).
Æfingar á Fellavelli eru tímasettar þannig að iðkendur eiga að geta nýtt sér Strætó.
Fljótlega verður síðan boðað vil foreldrafundar þar sem kjósa þarf nýjan tengil fyrir iðkendur fædda 2004. Helgi Sig hefur setið sem tengill fyrir þennan árgang og er tilbúin í að vera áfram en það er að sjálfsögðu öllum frjálst að bjóða sig fram. Sjálfur hef ég setið inni fyrir 2001 árganginn og í vegvísi Yngri flokka er mælst til að tenglar sem færast af yngra ári yfir á eldra ár sitji áfram, ég er tíbúin í það en ef það er hins vegar áhugasamir foreldrar sem vilja komast að sem tenglar þá er ég líka alvega tilbúin að stíga til hliðar. Þið hugsið þetta fyrir fundinn.
Nóg í bili.
Kveðja,
MJ
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.9.2010 | 00:05
Lokahófið!!!
Sæl nú
Myndir úr lokahófinu komnar í myndaalbúmið.
Þetta var bara stuð enda er Dagbjört alger atvinnumaður þegar kemur að því að skipuleggja hóf.
Kveðja,
MJ
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.9.2010 | 12:42
LOKAHÓF !!!
Sæl öll,
Við viljum byrja á því að þakka þeim sem fóru til Húsavíkur fyrir
skemmtilegan dag.Það eina sem er eftir af formlegu starfi 6 flokks þetta sumarið er
lokagleði flokksins. Gleðin fer fram föstudaginn 3. september. Mæting
er á grasbalann milli íþróttamiðstöðvar og grunnskóla stundvíslega
klukkan 16:30. Áætlað er að gleðin standi til klukkan 20:00 Foreldrum
er velkomið að vera með okkur þessa stund.
Mikil leynd ríkir yfir dagskrá gleðinnar en eitt er þó gefið upp og
það er sundferð, eru drengirnir því vinsamlegast beðnir um að taka
með sér sundföt.
Sérstaklega viljum Við bjóða velkomna í gleðina vini okkar frá
Seyðisfirði þá Stefán Ómar og Svein Gunnþór.
Þurfum við að gera ráðstafanir með mat fyrir hópinn og vil ég því
biðja ykkur um að staðfesta þátttöku drengjanna og fylgifiska ef þeir
eru.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.
Dagbjört og Maggi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.6.2010 | 11:46
Mótamál!!!
1) Austurlandsriðill Íslandsmótsins
Hattara stóðu sig vel á Fellavelli og mótið gekk vel fyrir sig, þó einhverjir hafi lent í því að spila marga leiki á stuttum tíma. Það var hins vegar nóg af leikjum og mikill spilatíma á hvern keppanda þannig að við erum ánægð með það.
Úrslit má finna á slóðinni http://www.ksi.is/mot/nyjustu-urslit/
2) Arion bankamótið
Arion bankamótið fer fram á sunnudaginn á Vilhjálmsvelli og byrjar kl. 11.00. Við sendum nánari upplýsingar um liðsskipan, liðsstjóra og hvar og hvenær við ætlum að hittast, á morgun þegar þjálfara hafa stillt þessu upp. Við erum með 20 skráningar og ætlum endilega að reyna að vera með 3 lið þannig að allir fái að spila sem mest. Ef einhver á eftir að skrá sig þá endilega látið vita.
3) Humarhátíð
Mér heyrist á fólki að það sé sá misskilningur í gangi varðandi mótið á Humarhátíðinni, að um eins dags mót sé að ræða (svipað og Húsavíkurmótið). Þetta mót er hins vegar sett upp með svipuðum hætti og Nikulás, þ.e. byrjar á föstudegi og líkur á sunnudegi, kostnaður per keppanda er 7.000 kr. og innifalið er þá gisting og fæði.
Hér er slóð varðandi ýmsar upplýsingar.
http://www.rikivatnajokuls.is/sindri/humarhatid/skraning/
Hér er slóð með dagskrá mótsins.
http://www.rikivatnajokuls.is/sindri/humarhatid/knattspyrna/
4) Nikulás
Það eru 16 drengir skráðir til leiks á Nikulás og við erum því með 2 lið skrá til leiks (vinir okkar frá Seyðisfirði Stefán Ómar og Sveinn verða með okkar). Hér fyrir neðan er listi yfir skráða keppendur og vil ég biðja foreldra um að staðfesta við mig að viðkomandi muni örugglega mæta. Eins ef einhverja vantar á listann sem ætla að fara að láta mig vita. Þetta vil ég vil ég biðja menn að gera í síðasta lagi á morgun (þann 24, júní). Eftir það lokum við fyrir skráningar og vil ég endilega biðja menn að virða það.
Nikulás | |
1 | Brynjar Berg |
2 | Brynjar Þorri |
3 | Elvar Veigur |
4 | Hafþór Logi |
5 | Ísar Karl |
6 | Jakob Jóel |
7 | Jóhann Ingi |
8 | Jónas Pétur |
9 | Kristinn Már |
10 | Ólafur Sveinmar |
11 | Stefán Ómar |
12 | Steingrímur Örn |
13 | Sveinn Gunnþór |
14 | Sölvi Víkingur |
15 | Valgeir Jökull |
16 | Vignir Freyr |
Nánari upplýsingar um mótið má finna á slóðinni http://www.nikulasarmot.is/
Baráttukveðjur,MJ og DK
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.6.2010 | 16:25
Höttur - Reynir
Sæl nú
Smellti inn nokkrum myndum af drengjunum sem leiddu liðin inn á leik Hattar og Reynis á laugardaginn.
Leikurinn vannst 4-2 eftir að Höttur hafði lent 0-2 undir.
Við hvetjum að sjálfsögðu alla til að mæta á heimaleiki Hatta bæði hjá körlum og konum og hvetja sitt lið.
Kveðja,
MJ
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.5.2010 | 10:49
Æfingamót á Fellavelli - ALLIR AÐ SKRÁ SIG
Sæl nú
Þessir ungu menn er skráðir á mótið á laugardaginn.
1) Jóhann Ingi
2) Gabríel A
3) Ísar Karl
4) Hafþór Logi
5) Óli
6) Sölvi Víkingur
7) Elís Alexander
8) Svanur Freyr
9) Brynjar Þorri
10) Vignir Freyr
11) jakob Jóel
12) Elvar Veigur
13) Guðjón Ernir
14) Brynjar Berg
Þetta er 14 stykki sem þýða 2 lið, en við þurfum endilega að ná í eitt lið í viðbót.
Þetta er þægilegt mót og góð æfing fyrir strákana. Mótið byrjar á Fellavelli kl. 10.00 og því líkur á milli 14.00 og 15.00. Þau lið sem þegar hafa skráð sig eru Fjarðabyggð með 3 lið og Einherji með eitt lið.
Þáttökugjald er 1.000 kr. á hvernig iðkanda sem greiðist undirrituðum á mótsstað eða leggist inn á reikning 305-26-517 (kt. 420786-1159).
Kveðja,
Maggi J
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.5.2010 | 16:08
Fjarðaálsmót 2010
Sæl nú
Þá liggur leikjaplanið fyrir vegna mótsins á laugardaginn og er það hér meðfylgjandi. Mótið hefst kl. 10.00 og líkur kl. 14.45 með grillveislu.
Það þýðir að við þurfum að vera komin á Reyðarfjörð upp úr kl. 9.30 á laugardagsmorgni og þá er gert ráð fyrir að keppendur hitti sína liðsstjóra og fá keppnistreyjur. Meðfylgjandi er skiptingu í lið og hvaða liðsstjórar fylgja hvaða liði.
Höttur fer með 22 drengi í 3 liðum á mótið og er skipulagið þannig að lið A spilar í A riðli og lið B-1 og B-2 spilar í B riðli.
Iðkendur bera engan kostnað vegna mótsins heldur greiðist kostnaður vegna keppnisgjalda (10.000 kr. á lið) og þjálfara úr sameiginlegum sjóði.
Að lokum viljum við minna á að það er kalt í höllinni þannig að menn verða að klæða sig vel. Eins er mikilvægt að keppendur mæti í síðum buxum (svörtum), hvítum sokkum og með legghlífar.
Svo er bara að muna að taka með sér góða skapið og Hattarhjartað!!!!
Áfram HÖTTUR
Maggi og Dagbjört
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.5.2010 | 14:20
Fréttapunktar!!!
# Þeir sem eiga eftir að greiða fyrir peysur og galla eru
vinsamlegast beðin um að gera það sem fyrst með því að leggja inn á
reikning 6 flokks. 305-26-517 kt. 420786-1159.
# Þeir sem eiga eftir að sækja wc-pappírinn geta hitt Heiðar í N1 á
mánudaginn og sótt skammtinn.
# Ákveðið hefur verið að færa æfinguna á þriðjudögum út á Fellavöll,
fimmtudagsæfingin verður á sínum stað í íþróttahúsinu.
# Fjarðaálsmótið verður næstkomandi laugardag. Við erum skráð með 3 lið (A + B + B) og verða nákvæmar tímasetningar sendar út um leið og þér liggja fyrir. Mótið hefst þó væntanlega um kl. 10 ef miðað er við fyrri ár.
Kveðja,
Maggi og Dagbjört
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.4.2010 | 14:19
Frí á sumardaginn fyrsta!!!
Sumardaginn fyrsta ber upp á fimmtudag þetta árið og því gefum við frí á fimmtudagsæfingunni.
Við komu svo sterkir til baka eftir helgina og þá verður vonandi farið að hlýna og lygna í Fellum. Þá verða líka bara 2 vikur í Fjarðaálsmótið þannig að strákarnir geta farið að láta dreima um glæsleg mörk og vel tímasettar tæklingar ;-)
Annars segjum við bara gleðilegt sumar og farsælt komandi haust!!!
Maggi og Dabba
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.4.2010 | 20:20
Foreldrarfundur - Fundargerð
Hérna kemur smá fundargerð frá fundinum á mánudagskvöld.
1) Mótamál
Eftirfarandi mót var ákveðið að 6 flokkur Hattar færi á í vor og sumar.
8. maí - Fjarðaálsmót á Reyðarfirði
24. maí - Æfingamót á Fellavelli
26. júní - Arionbankamót á Fellavelli
3. júlí - Humarhátíð á Höfn
9-11. júlí - Nikulásarmót á Ólafsfirði
Lok ágúst - Eimskipsmót á Húsavík
2) Gangurinn í starfinu
Flestir sáttir við gang mála í boltanum. Nokkrar góðar ábendingar um hvað mætti betur fara. Moli er farinn í frí fram í maí. Gorazd og Jón Páll verða að þjálfa í fjarveru Mola. Í sumar verður Moli að þjálfa hjá okkur, viðræður standa yfir við Jón Pál (þjálfari meistarflokks) um að hann komi að þjálfa yngri flokka ásamt Mola. Væntanlega verða svo 2 aðstoðarmenn með þeim.
3) Ákveðið var að fara af stað með fjáröflun til að við getum greitt sem mest niður mótsgjöldin í sumar. Nánari upplýsinga er að vænta fljótlega.
4) Vorgleði verður hjá 6 flokk í byrjun maí. Góðar hugmyndir eru vel þegnar þar sem tenglar eru einstaklega hugmyndasnauðir ;-)
Held að fleira hafi ekki verið rætt.
Góðar kveðju,
Dagbjört og Maggi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eldri færslur
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- September 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010