Færsluflokkur: Bloggar
11.1.2011 | 12:42
11.janúar - æfing inni í Fellahúsi klukkan 16:00
Sælir strákar
Æfingin í dag, Þriðjudaginn 11.janúar verður inni í íþróttahúsinu í Fellabæ klukkan 16:00 - 17:00.
Þannig að þið þurfið að taka með ykkur skó til að vera á inni.Við verðum að æfa inni því Fellavöllur er allur í snjó og klaka.
Vonandi geta allir komist.
Kv Tóti
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.1.2011 | 10:47
Nýtt fótboltaár - praktísk mál
Nokkur praktísk mál í upphafi árs.
1) Skipulag æfinga:
Fótboltaæfingar hefjast aftur eftir jólafrí mánudaginn 10. janúar. Æft verður samkvæmt sömu æfingatöflu og gefin var út haustið 2010. Ef einhver er ekki viss með æfingatíma er sá hinn sami beðin um að setja sig í samband við tengla eða kíkja inn á www.hottur.is.
2) Þjálfarar:
Þjálfarar Yngri flokka á vorönn 2011 eru.
Þórarinn Máni (Tóti Boggason) hefur umsjón með 8. og 7. flokki ásamt 6. flokki karla.
Sigríður Baxter (Sigga Baxter) hefur umsjón með 6. og 5. flokki kvenna.
Elvar Ægisson hefur umsjón með 3. og 4. flokki karla og kvenna og 5. flokki karla, til að byrja með en fyrir liggur að Höttur hefur auglýst eftir fyrir þjálfara fyrir þessa flokka (3. og 4. flokk karla og kvenna og 5 flokk karla). Umsóknarfrestur var til 29. desember og er verið að vinna úr þeim umsóknum sem bárust.
Gorazd kemur ekki núna eftir áramótin en ekki er ólíklegt að hann snúi aftur þegar vora tekur og taki með okkur sumarvertíðina.
3) Æfingagjöld:
Greiðsluseðlar æfingagjalda vegna vorannar verða sendir út í byrjun febrúar og er gjaldskrá æfingagjalda vegna vorannar er eftirfarandi:
8. flokkur (börn fædd 2005 og 2006) greiðir 6.000.- fyrir tímabilið 10. janúar til 10. júní.
3. til 7. flokkur greiða 18.000.- fyrir tímabilið frá 10. janúar til 10. júní.
3. til 7. flokkur greiða 10.000.- fyrir tímabilið frá 1. apríl til 10. júní (þetta er nýbreytni sem er ætlað að koma til móts við þá ekki vilja æfa yfir harðasta veturinn (t.d. vegna skíðaiðkunar).
Veittur er 10% systkinaafsláttur.
4) Mótahald framundan:
Eimskipsmót verður laugardaginn 29. janúar 2011 (endanlega dagsetning) og byrjar kl. 10.00 (sjá meðfylgjandi viðhengi).
Goðamót verður síðan dagana 25. 27. mars 2011. Byrjar um miðjan dag á föstudegi og klárast seinnipartinn á sunnudegi.
Menn geta því farið að skipuleggja norðurferð. Nánar upplýsingar er að finna á http://godamot.blog.is/blog/godamot/
Kveðja,
Tenglar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.12.2010 | 11:03
Flottir leikir í Fellum
Sæl nú
Hattarmenn voru flottir í gær í blíðunni á Fellavelli. Spilaðir voru nokkrir æfingaleiki við félaga okkar úr Fjarðabyggð og stóðu sig allir með sóma.
Úrslitin skipta minna máli þegar um svona leiki er að ræða heldur er markmiðið að læra og skemmta sér og ég sá ekki betur en að það gengi vel eftir.
Nokkur praktísk mál:
Jólafrí:
Síðasta æfing flokksins fyrir jól verður fimmtudaginn 16. desember og við byrjum svo aftur mánudaginn 10. janúar.
Eimskipsmót:
Eimskipsmótið verður sunnudaginn 16. janúar í Fjarðabyggðarhöllinni á Reyðarfirði.
Goðamót:
Goðamótið verður síðan dagana 25. 27. mars 2011. Byrjar um miðjan dag á föstudegi og klárast seinnipartinn á sunnudegi. Menn geta því farið að skipuleggja norðurferð.
Nánar upplýsingar er að finna á http://godamot.blog.is/blog/godamot/
Kveðja,
Tenglar
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.12.2010 | 14:15
Æfingaleikur - Fjarðabyggð í heimsókn
Það verður því engin æfing kl. 16.15 en allir sem ætla að vera með eiga að mæta tilbúnir í slaginn kl. 18.15!!!
Skráningar í athugasemdum.
Við hvetjum foreldra til að mæta og eiga notalega samverustund með drengjunum í Fellahreppi á aðventunni!!!
Með jólakveðju,
Tenglar
PS-1: Síðasta æfing flokksins fyrir jól verður fimmtudaginn 16. desember og við byrjum svo aftur mánudaginn 10. janúar.
PS-2: Eimskipsmótið verður sunnudaginn 16. janúar í Fjarðabyggðarhöllinni á Reyðarfirði.
PS-3: Goðamótið verður síðan dagana 25. 27. mars 2011. Byrjar um miðjan dag á föstudegi og klárast seinnipartinn á sunnudegi. Nánar upplýsingar er að finna á http://godamot.blog.is/blog/godamot/
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
26.11.2010 | 09:09
Eimskipsmóti FRESTAÐ!!!
Sæl nú
Eimskipsmótinu sem vera átti laugardaginn 4. des hefur verið frestað fram yfir áramót vegna óviðráðanlegra ástæðna.
Fjarðabyggðarmenn stefna á að halda þetta mót sunnudaginn 16. janúar og byrja um hádegisbil (skv. nýjustu upplýsingum).
Það verður nánar auglýst þegar nær dregur.
Kveðja,
Tenglar
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.11.2010 | 11:36
Eimskipsmót í Fjarðabyggð
Yngriflokkar Fjarðabyggðar í samvinnu við Eimskip heldur knattspyrnumót í Fjarðabyggðarhöllinni á Reyaðrfirði fyrir 5., 6. og 7. flokk karla og kvenna.
Mótið verður laugardaginn 4. desember og er áætlað að það byrji um kl. 10:00 og ljúki seinni partinn.
Leikið verður eftir knattspyrnureglum KSÍ í 7 manna keppni. Stefnt er að því að spila bæði í A- og B-liðum ef næg þátttaka fæst.
Við stefnum á að fara með 3 lið og því verða allir að skrá sig!!!
Skráningar verða með sambærilegum hætti og þegar við fórum að spila æfingaleik um daginn. Fara inn ahugasemdir og SKRÁ sig.
Kveðja,
Tenglar
PS: Það er hugsanlegt að mótið frestist til sunnudagsins 5. desember en það verður alltaf þessa helgi, þannig að þið takið helgina bara frá. Endanleg tímasetning skýrist í vikunni.
PSS: Þið voruð flott á Fellavelli í gær (ef einhver var með myndavél endilega að senda mér nokkrar myndir til að setja inn á síðuna)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
15.11.2010 | 21:06
Flottir Hattarstrákar
Hattardrengir voru flottir í Fjarðabyggðarhöllinni í dag þegar vinir okkar í Fjarðabyggð buðu okkar í heimsókn. Spilaðir voru æfingaleikir í ríflega klukkustund og stóðu allir sig með sóma, bæði heimamenn og gestir.
Vonandi getum við gera meira af þessu í vetur.
Takk fyrir okkur Fjarðabyggðarmenn og áfram Höttur.
MJ
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.11.2010 | 20:16
Æfingaleikir á morgun - ENGINN æfing!!!
Sæl nú
Það verður ekki æfing á morgun hjá þeim sem ekki komast með á Reyðarfjörð!!!
Þeir mæta bara kátir á þriðjudaginn.
Þið hinir... mæting kl. 16.20 klæddir og klárir í slaginn
Kveðja,
MJ
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.11.2010 | 23:00
Æfingaleikir í Fjarðabyggðahöllinni
Drengirnir þurfa að vera kominn niður eftir kl. 16.30 (klæddir til knattspyrnuiðkunar og tilbúnir í slaginn) og við reiknum með að þetta verði búið kl. 17.30.
Menn þurfa að koma sér sjálfir á staðinn en ef foreldrar komast ekki sjálfir þá hringja menn sig bara saman.
Þeir sem hafa áhuga á að vera með þurfa að skrá sig undir athugasemdir hér að neðan.
MJ
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
27.9.2010 | 16:31
Foreldrafundur
Dagskrá:
- Gangurinn í starfinu
Þjálfarar og aðstoðarmenn
Æfingar og skipulag
Verkefni vetrarins - Kosning nýrra tengla
Tengill fyrir 2002 árganginn. - Önnur mál.
MJ
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Eldri færslur
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- September 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010