Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Fimmtudaginn 17.mars - ÚTIÆFING á Fellavelli

Næstkomandi Fimmtudag, 17.mars, ætlum við að æfa á Fellavelli. Skólahreysti er búið að taka íþr.húsið yfir og verður því íþr.húsið lokað á Fimmtudaginn.

Það er flott að fá eina útiæfingu í staðin, munið bara að klæða ykkur eftir veðri.

Æfingin er á sama tíma og venjulega eða klukkan 15:00 - 16:00.

Sjáumst á Fellavelli

Kv Þjálfarar 

P.S. Munið að skoða Goðamóts fréttir hér fyrir neðan. 


Goðamót - fréttir

Sæl öll

Hér fyrir neðan eru skráningarnar á Goðamótið en 18 strákar ætla norður og erum við skráðir með 2 lið.
 
 Iðkandi ÁrgerðSkráning Goði
1Alexander I. Gunnþórsson (Seyðisf.) .....2001Skráður
2Almar Aðalsteinsson ................................2002Skráður
3Arnar Þórisson ...........................................2002Skráður
4Brynjar Berg Tumason ............................2001Skráður
5Brynjar Þorri Magnússon .........................2001Skráður
6Daníel Ingi Davíðsson ..............................2002Skráður
7Gunnþór Elís Georgsson .........................2002Skráður
8Helgi Jónsson ...........................................2002Skráður
9Hrafkell Ísar Tjörvason .............................2002Skráður
10Jóhann Ingi Magnússon ..........................2001Skráður
11Jónas Pétur Gunnlaugsson .....................2001Skráður
12Kristinn Viktor Helgason ..........................2002Skráður
13Óðinn Skúli Árnason .................................2002Skráður
14Óliver Enok Guðmundsson .....................2002Skráður
15Sölvi V. Heiðarsson ...................................2001Skráður
16Valdimar Brimir Hilmarsson ....................2002Skráður
17Valgeir Jökull Brynjarsson .......................2001Skráður
18Vignir Freyr Magnússon ..........................2001Skráður
     


Við gerum ráð fyrir að allir/langflestir strákanna gisti í Glerárskóla (ásamt nokkrum pöbbum).

Kostnaðurinn verður 10.000 kr. á keppanda og innifalið í því er allur kostnaður við mótið (skráningargjald, fæði, gisting, sund, ís og fleira). 
Þetta þarf að leggja inn á reikning flokksins 305-26-517. 
kt. 420786-1159, sem fyrst!!!

Til viðbótar þurfa strákarnir að hafa vasapening (1000-1500 kr.) því við ætlum að gera eitthvað skemmtilegt á laugardeginum, fara í keilu, bío eða á skauta (kemur í ljós).

Við munum svo kaupa ávexti og drykki til að hafa sem hressingu en við skulum gera ráð fyrir að flokkurinn borgi það (það væri gott að fá einhverja hagsýna húsmóður (eða húsföður ef hann er til) til að taka að sér að sjá um þetta).

Þá er viðhangandi handbók um Goðamótið þar sem helstu upplýsingar koma fram en leikjaplanið kemur væntanlega inn á heimasíðu mótsins í vikunni http://www.godamot.blog.is/blog/godamot/

Við sendum frekari upplýsingar þegar nær dregur.

Áfram Höttur – skjóta skora!!!
Tenglar
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

FORELDRAFUNDUR

Sælir kæru foreldrar 

Boðað er til foreldrafundar 6. flokks karla! 

Hettan
kl. 20.00
Mánudaginn 14. mars 2011 

Dagskrá: 

1)  Gangurinn í starfi flokksins (þjálfari fer yfir málin ásamt tenglum).

2)  Verkefni sumarsins (þjálfari fer yfir hugmyndir um mót fyrir flokkinn í sumar).

3)  Önnur mál

4)  Goðamót 2011 (foreldra iðkenda sem fara norður sitja eftir við ræðum praktísk mál). 

Skyldumæting!!! 

Kveðja,
Tenglar

Hverjir eru búnir að æfa sig

Jæja strákar...hverur eru búnir að vera duglegir að æfa sig í fótbolta??

Munið líka að við erum í átaki að halda bolta á lofti. Það hafa margir komið til mín og sagt mér að þeir séu búnir að bæta metið sitt, sem er frábært. En mig langar að allir bæti metið sitt.

Muniði söguna sem ég sagði ykkur af stráknum sem ég var að þjálfa hjá Fram?

Metið hans var 53 og þegar við vorum búnir að æfa okkur í smá tíma og hann mjög duglegur að æfa sig heima bætti hann metið sitt aftur og aftur. Svo þegar ég tók hann í próf þá náði hann 271. Hann fór mjög oft út með boltann að leika sér.

 

images

 

steven-gerrard_1107544clionelmessiarsenalcelebration20100406_500x281
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Haldiði að þessir kappar voru duglegir að æfa sig þegar þeir voru yngri?? 

Æfingaleikur Mánudaginn 21.feb

Núna á Mánudaginn, 21.febrúar, ætlum við að taka æfingaleik við Fjarðabyggð. Leikirnir verða spilaðir á Reyðarfirði í höllinni þeirra.

Leikirnir byrja klukkan 16:30 og standa til sirka 17:45. Það er mæting um 16:15.

Muna að taka allt fótboltadótið með ykkur, en þið fáið búning á staðnum þeir sem eiga ekki.

Þeir sem ætla að koma og keppa (sem eru vonandi allir) eiga að skrá sig hér á bloggið.

Muna að taka með sér fótboltaskó, legghlífar, góð föt og góða skapið.

Þannig að það verður enginn æfing á mánudaginn heldur ætlum við að keppa við Fjarðabyggð í staðinn.

Hlakka til að sjá ykkur

Flottasta herbergi í heimi 

Set inn eina mynd af flottasta herbergi sem ég hef séð :) 


Goðmót endanlega skráning og nýr tengill

Sæl nú

13/14 strákar eru skráðir á Goðamótið þannig að við höldum okkur við tvö lið og reynum að frá Seyðfirðingana til að bakka okkur upp.  Það þýðir hins vegar að menn mega alls ekki forfallast.

Það væri hins vegar gott að fá fleiri Hattara og því bið ég menn endilega að skoða hvort hugsanlega er hægt að leyfa strákunum að fara þó foreldrarnir ekki ekki heimangengt, t.d. þannig að menn fái að fara með vinum.  Það er t.d. áberandi hvað það vantar marga af eldra árinu. 

Þið hugsið það því móti er ekki fyrr en í lok mars.
 
 6. flokkur IðkandiSkráning Goði
1Almar AðalsteinssonSkráður
2Brynjar Þorri MagnússonSkráður
3Gunnþór Elís GeorgssonSkráður
4Hrafkell Ísar TjörvasonSkráður
5Jóhann Ingi MagnússonSkráður
6Jónas Pétur GunnlaugssonSkráður
7Kristinn Viktor HelgasonSkráður
8Óðinn Skúli ÁrnasonSkráður
9Óliver Enok GuðmundssonSkráður
10Valdimar Brimir HilmarssonSkráður
11Vignir Freyr MagnússonSkráður
12Helgi JónssonSkráður
13Daníel Ingi DavíðssonSkráður
14Sölvi V. HeiðarssonKemur líklega
   
15Guðjón Ernir HrafkelssonKemur ekki
16Sævar Elí JóhannssonKemur ekki
17Guðþór Hrafn SmárasonKemur ekki
18Erlingur Gísli BjörnssonKemur ekki
19Brynjar Berg TumasonKemur ekki
20Elís A HrafnkelssonKemur ekki
21Valgeir Jökull BrynjarssonKemur ekki
 
 
Annað mál er að Hilmar (pabbi Valdimars) hefur tekið við hlutverki tengils fyrir 2002 árganginn af Helga (pabba Alvars).  Tölvupósturinn hjá Hilmari er hilmar@sokn.is. 

Við þurfum svo fljótlega að blása til foreldrafundar og fara yfir sumarið, hvaða mót á að fara á osfrv. 

Þið fylgist með hér á blogginu.

Kveðja,
Tenglar

GOÐAMÓT - SKRÁNING!!!

Sæl veri þið og takk fyrir gott mót á laugardaginn.

Ég fékk póst í dag frá mótsstjóra Goðamótsins þar sem við vorum beðin að staðfesta skráningu okkar á mótið.  Það þýðir að við þurfum að greiða staðfestingargjöld fyrir skráð lið í lok vikunnar.

Við vorum búin að melda okkur inn með 2 lið sem þýðir að við þurfum að fara með 16-18 stráka (1-2 varamenn), ef áhugi verður mikill þá gætum við hugsanlega bætt þriðja liðinu við en ef við verðum bara 10 þá þurfum við að fækka liðum niður í eitt. 

Ég vil því biðja þá sem ætla norður að skrá drengina sem fyrst!!!

Best er að gera það í athugasemdum á blogginu (set þetta inn þar líka) en ef menn lenda í vandræðum þá send menn bara póst á mig og set menn inn. 

Við skulum endilega reynda að láta skráningarnar vera bindandi (eins langt og það nær), bæði þannig að menn séu ekki að afboða sig á síðustu stundu (og við verðum of fáir miðað við skráð lið) eða að menn séu að skrá sig á síðustu stundu (og við verðum með allt of marga varamenn). 

Þetta er 3ja daga mót sem byrjar á föstudegi um hádegi og klárast síðdegis á sunnudegi (25. – 27. mars).  Gist er í Glerárskóla og hefur venjan verið sú að strákarnir gisti þar saman (nema eitthvað sérstakt sé) og halda hópinn sem mest yfir helgina.  Í fyrra fór Höttur t.d. í keilu á laugardagkvöldið og síðan er sund og ísferð innifalin í mótgjöldum. 

Við áætlum að skráningagjaldið verði 10.000 kr. og innifalið er í því keppnisgjald, fæði og þjálfarakostnaður (hugsanlega getum við eitthvað greitt það niður ef menn hafa áhuga á fjáröflunum).  Til viðbóta þarf svo einhvern vasapening ef við förum með hópinn í bíó eða keilu.

Þegar Goðahópurinn fer að taka á sig mynd þá blásum við svo til foreldrafundar og förum betur yfir málin.

Sjá nánar á http://www.godamot.blog.is/blog/godamot/

Kveðja,

MJ

Flott mót á Reyðarfirði

Sælir strákar

Núna er mótið búið að Reyðarfirði og viljum við Jói hrósa ykkur fyrir framistöðuna. Þið stóðuð ykkur allir frábærlega og var gaman að sjá ykkur spila.

Þótt við spiluðum bara við Fjarðabyggð (og sumir við annað Hattarlið) þá var þetta skemmtilegt og var gaman að sjá hvað þið eruð farnir að spila vel saman.

Við unnum 5 leiki, gerðum 5 jafntefli og töpuðum 2. Með smá heppni hefðum við getað unnið mun fleiri leiki. 

Það hafa allir tekið framförum og ef við höldum áfram að æfa vel og leggja okkur fram þá verðum við bara betri og betri, bæði sem einstaklingar og sem lið.

Hérna koma tvær góðar setningar.

Í hvert skipti sem ég fer á fótboltaæfingu ætla ég mér að verða betri leikmaður en ég var í gær.

-  Mia Hamm, besta fótboltakona heims 

Í hvert skipti sem ég fór út þá laug ég að mömmu. Ég sagði henni að ég væri að fara út til vina minna en þá fór ég í staðinn út á götu að leika mér í fótbolta. Ég var alltaf með bolta á tánum að æfa mig.

-  Ronaldo, einn besti fótboltamaður heims í dag 

 


 

Hlökkum til að sjá ykkur á æfingu á mánudaginn.

Kv Tóti og Jói


Mótið á Laugardag

Núna er loksins komið að mótinu sem við höfum verið að bíða eftir.

Foreldrar ættu að vera komin með í hendurnar leikjaplan og liðskipan.

Mótið byrjar klukkan 10:00 og er mæting 09:30. Muna eftir legghlífum og fótboltaskóm

Liðin eru svona:

A-lið                                              B1-lið                                          B2-lið 

Vignir

Brynjar Berg

Daníel

Elís

Jónas

Óðinn

Gunnþór

Helgi

Jói

Guðjón

Almar

Tóti

Elli

Kristinn

Óliver

Brynjar Þ

 

Valdimar

Valgeir

 

 

Þeir sem eru feitleitraðir eru fyrirliðar á mótinu. 

Það vantar í bæði B-liðin en það er í góðu lagi því ég mun alltaf færa menn á milli svo við verðum alltaf nógu margir til að keppa. Sumir úr B2 spila með B1 og sumir úr A-liði þurfa að spila með B-liðunum og svo framveigis. Það er bara stuð og munum við gera þetta skemmtilegt.

Hlökkum til að sjá ykkur

Kv Þjálfarar 

 


Æfing á Fellavelli á Fimmtudag og Eimskip-mótið

Sælt veri fólkið

Núna á Fimmtudaginn 20 janúar verður íþróttahúsið lokað vegna Þorrablóts. Í staðinn verður æfingin á Fellavelli á sama tíma, 16:00 – 17:00. Muna Fellavöll en ekki íþróttahús.

Svo styttist í Eimskip-mótið á Reyðarfirði en það er 29.janúar. Við ætlum að reyna að mæta með 3 lið og til þess að það takist verða helst allir að komast. Skráning er hafinn hérna á blogginu okkar og er síðasti dagur til að skrá sig á Fimmtudaginn. Þeir sem eru ekki skráðir þá komast því miður ekki á mótið því við verðum að senda Fjarðarbúum lista yfir fjöldan á Föstudaginn.

Skráningargjaldið er 1.500 kr og þarf að leggja þann pening inn á 305-26-517. kt. 420786-1159

Mótið ætti ekki að taka mjög langan tíma og vonandi geta allir tekið daginn frá og gert sér glaðan dag á mótinu. Ef einhverjir eru í vandræðum með að fara er alltaf hægt að koma strákunum í bíl með einhverjum öðrum.

P.S. Svo vill ég endilega hvetja foreldra að vera í góðu sambandi við mig. Það eru alltaf einhverjar spurningar sem brenna á vörum foreldranna og oft eru einhver vandamál í gangi og vill ég endilega vita af öllu svoleiðis. Ég hef alltaf verið í góðu sambandi við foreldra þar sem ég hef þjálfað og vill endilega halda því áfram. Þannig að ekki hika við að hringja eða senda mér póst ef það er eitthvað.

 

Kv Tóti þjálfari

Sími: 865-6640

toti_boggason@hotmail.com


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Yngri flokkar Hattar - 5. flokkur
Yngri flokkar Hattar - 5. flokkur

Upplýsinga- og spjallsíða fyrir 5. flokka Hattar í fótbolta.

Æfingartímar:

Mánudagur:
16:15 - 17:30 (Fellavöllur)

Þriðjudagur:

16:15 - 17:30 (Fellavöllur)

Fimmtudagur:
16:15 - 17:30 (Fellavöllur)

Þjálfari:
Ljubisa Radovanovic (Ljuba)
865 9331 
ljuba@simnet

Tenglar flokksins:

Magnús Jónsson (2001)
magnusjonsson@kpmg.is
861 9024

Þórunn Brynjar (2001)
smarihg@simnet.is

Þórir Óskar Guðmundsson (2001)
dalsel10@simnet.is

Bankareikningur flokksins:
0305-26-5171
kt. 420786-1159

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband