28.3.2011 | 22:58
Núna breytum við um hugarfar
Sælir strákar
Núna er Goðamótið búið og hægt er að segja að úrslitin voru ekki okkur í hag. En það er ekki alltaf númer 1,2 og 3 í þessu. Mikilvægast er að hafa gaman og held ég að allir skemmtu sér vel þrátt fyrir úrslitin, þið voruð allavega hressir á æfingu í dag og voru allir sammála um að ferðinn hafi verið skemmtileg.
Við töluðum svolítið lengi saman á æfingu í dag og veltum því fyrir okkur afhverju við vorum að tapa svona stórt í leikjunum. Þið komuð með marga góða punkta og þessa punkta ætlum við að bæta okkur í.
Það sem við ætlum að gera á æfingum:
- Leggja okkur alltaf 100% fram á æfingu
- Vera jákvæðir og hjálpa félaganum
- Gera allar æfingar á fullu
- Vera einbeittir
- Vera duglegir að hrósa hinum
Það sem við ætlum að hugsa um á æfingum:
- Það nær enginn af mér boltanum
- Ég ætla ekki að láta neinn sóla mig
- Ég ætla alltaf að skora þegar ég get
- Ég ætla alltaf að dekka í vörn og vera fljótur að ná boltanum af hinum
- Ætla alltaf að gera góðar sendingar
- Ég ætla að vera bestur á æfingunni
Það sem við ætlum EKKI að gera á æfingum:
- Vera neikvæðir
- Tuða í félaganum
- Fíflast
- Gera æfingar labbandi og með hálfum hug
Eins og við ákváðum á æfingu í dag þá ætlum við að laga þetta. Æfingin í dag gekk líka rosalega vel, allir voru á fullu, hlupu mikið, dekkuðu þegar þeir voru í vörn og lögðu sig 100% fram í að vinna leikina þegar við vorum að spila. Og öllum fannst mjög gaman á æfingunni því allir tóku svo vel á því. Svona eiga allar æfingar að vera og ætlum við að hafa það þannig hér eftir. Því þannig verðum við betri í fótbolta.
Þótt við eigum heima á Egilsstöðum þá getum við alveg verið jafn góðir og aðrir strákar í fótbolta, og miklu betri. En til þess að verða betri þurfum við að leggja okkur fram á æfingum...þannig verðum við betri. Maður verður ekki betri á að hugsa um það, maður þarf að æfa sig.
Hlökkum til að sjá ykkur á næstu æfingu þar sem allir ætla að leggja sig 100% fram.
Kv Þjálfarar
P.S. Foreldrar – ekki hika við að senda okkur spurningar eða spjalla við okkur ef það er eitthvað sem þið eruð að spá í, bæði í sambandi við mótið eða bara almennt. Við heyrum oft sögusagnir um hitt og þetta eða að fólk sé að spá í hinu og þessu en það er mjög sjaldan haft samband við okkur sjálfa. Það er svo gott vera í góðu sambandi við foreldra. Teljum við það mjög mikilvægt stákanna vegna.
Eldri færslur
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- September 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
Athugasemdir
Takk fyrir samveruna um helgina.
Mórallinn og stemmningin bætti upp úrslitin.
Áfram Höttur.
Tumi og Brynjar Berg (IP-tala skráð) 29.3.2011 kl. 22:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.